AÐ FÁ HJÁLP EF ÞÚ ERT YNGRI EN 18 ÁRA

BARNAVERND

Ef þú ert yngri en 18 ára færðu aðstoð við að vinna úr afleiðingum ofbeldis hjá barnavernd, hvort sem þú ert þolandi eða gerandi. Sumum unglingum finnst kannski skrítið að leita til barnaverndar og upplifa sig nær því að vera fullorðin en börn. Í skilningi laganna ertu samt ennþá á barnsaldri og því ber okkur sem samfélagi ríkari skylda til að vernda þig gegn ofbeldi. Barnavernd vinnur alltaf með hagsmuni þína að leiðarljósi.

Í málum sem varða ofbeldi er börnum og unglingum boðið í könnunarviðtal í Barnahúsi og fá í framhaldinu þá hjálp sem þau þurfa, t.d. í formi sálfræðiviðtala. Til að koma þessu ferli af stað þarf að hafa samband við barnavernd í því sveitafélagi sem þú býrð í. Fáðu einhvern fullorðinn til að hjálpa þér ef þú mögulega getur, t.d. foreldri, kennara, námsráðgjafa eða eldri fjölskyldumeðlim. Ef þú gerir þetta upp á eigin spýtur finnurðu upplýsingar um hvernig þú kemst í samband við barnavernd á heimasíðu sveitarfélagsins sem þú býrð í. Svo geturðu líka hringt í 112 og óskað eftir sambandi við barnavernd í þínu sveitarfélagi (það má hringja í 112 út af svona málum þó að það sé ekkert neyðarástand). Barnavernd tekur á móti tilkynningunni, mun svo líklegast boða þig í viðtal og hjálpa þér með næstu skref í Barnahús. Mundu að barnavernd vinnur fyrir þig. Ef þú óttast eitthvað varðandi það að hafa samband við barnavernd eða ert bara með einhverjar spurningar um ferlið er þér velkomið af hafa samband við okkur á Stígamótum og við getum vonandi svarað spurningum og hjálpað þér að fá þá hjálp sem þú átt rétt á.

STÍGAMÓT

Ef þú hefur nú þegar fengið aðstoð hjá barnavernd og málið þitt er þekkt þar er þér velkomið að koma í viðtöl hjá Stígamótum. Einnig getur þú fengið aðstoð á nafnlausa netspjallinu: Sjúktspjall.

BERGIÐ HEADSPACE

Bergið er stuðnings- og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri. Markmið Bergsins er að bjóða upp á lágþröskuldaþjónustu með áherslu á stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Í Berginu er lagt upp með að skapa notalegt og öruggt umhverfi fyrir ungt fólk sem vill fá aðstoð fagfólks og notenda með fjölbreytta reynslu.

Sími: 571-5580
Netfang: [email protected]
Heimilisfang: Suðurgata 10, 101 Reykjavík

TAKTU SKREFIÐ

Taktu skrefið er hópur sálfræðinga sem aðstoða fólk sem hefur áhyggjur af kynferðislegri hegðun sinni, á netinu eða gagnvart öðru fólki. Ef þú heldur að það sé mögulegt að þú hafir beitt einhvern kynferðislegu ofbeldi, ef þú hefur áhyggjur af kynferðislegri hegðun þinni eða hefur fengið athugasemdir um vafasama hegðun eða áreitni, fáðu hjálp til að breyta því.

Taktu skrefið er hópur sálfræðinga með sérþekkingu á þessu sviði. Þjónustan er ekki gjaldfrjáls en flest stéttarfélög niðurgreiða þó sálfræðiþjónustu. Einnig er hægt að athuga með styrk hjá félagsþjónustu eða þjónustumiðstöðvum hjá þínu sveitarfélagi. Athugið að fyrsti tíminn kostar einungis 3000 kr.

Sálfræðingar Taktu skrefsins eru bundnir þagnarskyldu þannig að þær upplýsingar sem þú gefur upp í meðferðinni trúnaðarmál. Þó eru undantekningar á þeirri reglu, til dæmis ef metið er að þú sért í hættu eða einhver í kringum þig. Nánari upplýsingar má finna í siðareglum sálfræðinga og í lögum um heilbrigðisstarfsmenn.

Taktu fyrsta skrefið og fáðu hjálp með því að hafa samband á [email protected]. Tölvupósti er svarað eins fljótt og hægt er.

AÐ FÁ HJÁLP EF ÞÚ ERT YFIR 18 ÁRA

STÍGAMÓT

Fólk af öllum kynjum sem er orðið 18 ára er velkomið á Stígamót. Ef þú ert 17 ára eða yngri færðu aðstoð í gegnum barnavernd eins og kom fram hér að ofan. Til að fá þjónustu á Stígamótum er best að hringja eða senda okkur tölvupóst og panta tíma. Við reynum alltaf að koma öllum sem fyrst að en stundum er nokkurra vikna bið. Þú færð viðtal hjá ráðgjafa sem tekur á móti þér á Stígamótum og býður þér inn í viðtalsherbergi. Við reynum að hafa kósý og notalega stemmningu hjá okkur. Þegar þú kemur í viðtalið ræður þú ferðinni. Stundum byrjar fólk á að tala um hvernig því líður, sumir fara beint í segja frá kynferðisofbeldinu sem það varð fyrir og aðrir biðja ráðgjafann um að útskýra ákveðna hluti, t.d. varðandi kæruferli eða afleiðingar kynferðisofbeldis. Sumir eru ekki vissir hvað þeir eiga kalla það sem gerðist en líður samt illa með það og þá er hægt að fá hjálp við að greina atburðinn. Hugmyndin er að þetta sé hjálp til sjálfshjálpar með það að markmiði að þér líði betur.

Öll þjónusta á Stígamótum er ókeypis. Það er hægt að hafa samband við okkur nafnlaust og þú þarft ekki gefa upp nafn ef þú vilt það ekki. Ráðgjafarnir okkar eru allir háskólamenntaðir og hafa menntun á ólíkum sviðum s.s. félagsráðgjöf, sálfræði, náms- og starfsráðgjöf, fjölskyldumeðferð, kynjafræði og listmeðferð. Allir hafa þeir mikla reynslu af vinnu með brotaþolum kynferðisofbeldis.

Mörgum finnst erfitt að leita sér hjálpar og það er allt í lagi. Við minnum þig á að ofbeldi sem þú verður fyrir er aldrei þér að kenna. Stundum finnst fólki það sem það lenti í ekki nógu alvarlegt til að fá aðstoð. Leyfðu þér að njóta vafans, fáðu viðtal og kannski er niðurstaðan sú að þér líði vel og þurfir ekki meiri hjálp en kannski er það ekki svo einfalt. Það skiptir ekki máli hversu langt er síðan ofbeldinu var beitt, það er aldrei of seint að leita hjálpar!

Sími: 562-6868
Netfang: [email protected]
Facebook: Stigamot (hægt að skrifa okkur skilaboð í gegnum FB)
Heimilisfang: Höfðabakki 9A, 110 Reykjavík (Bogahúsið, 3. hæð)

HEIMILISFRIÐUR

Ef þú ert yfir 18 ára og beitir eða telur þig beita ofbeldi færðu hjálp hjá Heimilisfriði. Hjá Heimilisfriði er tekið á móti öllum þeim sem telja sig þurfa aðstoð til þess að hætta að beita maka sinn ofbeldi. Ef þú ert óviss hvort þjónusta Heimilisfriðar gæti hjálpað þér að skoða síðu Heimilsfriðar um ofbeldi til að aðstoða þig við að meta stöðuna þína. Heimasíðu Heimilisfriðar má nálgast hér með öllum helstu upplýsingum.

Sími: 555-3020
Netfang: [email protected] 
Facebook: Heimilisfriður
Heimilisfang: Höfðabakki 9, 110 Reykjavík