Stundum er erfitt að sjá muninn á heilbrigðu sambandi og óheilbrigðu. Ólíkt góðum samböndum sem ganga út á jafnrétti, virðingu og traust snúast þau óheilbrigðu um það að stjórna hinni manneskjunni. Á fyrstu stigum sambandsins finnst þér óheilbrigð hegðun kannski ekkert stórmál.
Afbrýðisemi, lítillækkandi ummæli, ráðríki, að hækka róminn og að stugga við eða hrinda eru allt óeðlilegar samskiptaleiðir sem notaðar eru til að ná stjórn yfir annarri manneskju og öðlast vald í sambandinu. Þetta eru oft fyrstu merki ofbeldissambands. Ofbeldi er alltaf val þess sem beitir því og það er aldrei neitt sem afsakar ofbeldi.
Ef þú heldur að þú sért mögulega í óheilbrigðu sambandi skaltu gera eitthvað í málinu sem fyrst. Hér eru nokkur atriði sem er gott að hafa í huga:
Þótt þú getir ekki breytt makanum þá geturðu breytt aðstæðunum. Íhugaðu að hætta með manneskjunni áður en ofbeldið versnar. Hvort sem þú ákveður að halda áfram í sambandinu eða fara úr því skaltu muna að setja eigið öryggi í fyrsta sæti. Hafðu samband við vini eða vandamenn sem geta stutt þig í þinni ákvörðun eða leitaðu til fagaðila sem vinna með ofbeldi. Einnig getur þú tekið sjálfspróf um hvernig sé komið fram við þig í sambandinu til þess að kanna hvort sambandið sé óheilbrigt.
Hér fyrir neðan er stutt myndband úr Sjúkást-herferð 2021: