Öll upplifum við afbrýðisemi einhvern tíma á lífsleiðinni. Afbrýðisemi er eðlileg tilfinning og hluti af rófi mannlegra tilfinninga. Hún getur birst á mismunandi hátt við mismunandi aðstæður – þú getur fundið fyrir afbrýðisemi í garð fjölskyldumeðlima, systkina, vina, aðila úr skólanum þínum eða íþróttafélaginu, eða í parasambandi.

Dæmi um afbrýðisemi eru setningar á borð við:

Þú hefur alltaf tíma fyrir vinkonur þínar en ekki fyrir mig.

Já, ertu að fara að hitta gamla bekkinn þinn, verður fyrrverandi þar?

Þú ert með mér, af hverju varstu að tala við þessar stelpur?

Í sjónvarpsþáttum, kvikmyndum, tónlistarmyndböndum og textum er afbrýðisemi í sambandi oft sýnd í rómantísku ljósi, eins og hún undirstriki að við elskum manneskjuna sem við erum með. Þetta er óheilbrigð birtingarmynd rómantíkur, enda er afbrýðisemi neikvæð tilfinning og á ábyrgð þess sem upplifir hana. Þessi tilfinning getur haft skaðleg áhrif á sambandið.

Það er mikilvægt að átta sig á því hvaðan afbrýðisemin kemur. Upplifirðu óöryggi? Sorg? Reiði? Sjálfshatur? Óttastu höfnun? Að verða útundan? Að missa manneskju sem skiptir þig máli? Afbrýðisemi sprettur gjarnan af óöryggi, hvort sem það er óöryggi í parasambandi, vináttu eða samskiptum milli fjölskyldumeðlima, og hún beinist gjarnan að þeim aðila sem við erum óörugg gagnvart. Stundum er afbrýðisemi viðbragð við því að vera beitt ofbeldi í sambandi.

Afbrýðisemi getur einnig sprottið af einhverju allt öðru. Kannski finnurðu fyrir óöryggi og það brýst út í samskiptum við aðra. Það skiptir máli að gera sér grein fyrir því að afbrýðisemi er þín eigin tilfinning og því á þinni ábyrgð en ekki annarra. Þú berð ábyrgð á því að skilja hver rótin er og takast á við þær tilfinningar sem þú ert að upplifa.

Það er hægt að takast á við afbrýðisemi.

Hér eru nokkur ráð um það sem þú getur gert:

  • Ef þú finnur fyrir mikilli afbrýðisemi í tilteknum aðstæðum er gott að fara úr aðstæðunum og gefa þér pláss til að velta því fyrir þér hvaðan tilfinningin kemur.
  • Þegar þú hefur einhverja hugmynd um það skaltu íhuga hvernig þú getur rætt málið við makann.
  • Talaðu við makann, segðu að þú hafir fundið fyrir afbrýðisemi í ákveðnum aðstæðum og útskýrðu hvers vegna þú heldur að það hafi gerst. Ef það spratt til dæmis af óöryggi sem þú upplifir í sambandinu er gott að ræða það. Veltið því fyrir ykkur hvernig hægt sé að vinna úr þessum tilfinningum. Mundu að sýna virðingu í svona samtali.
  • Ef þér tekst ekki að leysa úr þessum tilfinningum getur verið gott að tala við óháðan aðila. Leitaðu þér aðstoðar hjá sálfræðingi eða ráðgjafa sem getur aðstoðað þig við að takast á við afbrýðisemina.

Afbrýðisemi er stundum notuð sem stjórnunartæki í samböndum, til að stýra klæðnaði, hegðun og samskiptum hins aðilans. Slík stjórnun er ofbeldi sem getur skaðað hina manneskjuna. Taktu ábyrgð á eigin afbrýðisemi og leystu úr henni á farsælan máta. Leitaðu þér hjálpar ef þú átt í erfiðleikum með að takast á við þessar tilfinningar.

Hér fyrir neðan er stutt myndband út Sjúkást herferð 2018: