SJÚKÁST er forvarnarátak á vegum Stígamóta um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Markmið átaksins er að ungmenni þekki lykilhugtök á borð við mörk og samþykki og geti greint muninn á heilbrigðum, óheilbrigðum og ofbeldisfullum samböndum.
Þessi vefsíða inniheldur auðlesnar upplýsingar um ýmislegt sem viðkemur samböndum ungs fólks. Á henni má finna upplýsingar um birtingarmyndir ofbeldis, kynlíf, klám, hvað einkennir heilbrigð sambönd og ýmislegt fleira. Þá eru hér líka upplýsingar um jafnrétti og femínisma auk kafla um aktívisma fyrir þau sem vilja leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn ofbeldi.
Stafsfólk Stígamóta útbúa árlega SJÚKÁST fræðslu í tengslum við SJÚKÁST herferðina. Starfsfólk félagsmiðstöðva, grunnskóla og framhaldsskóla sem og annarra stofnanna sem vinna með ungmönnum getur fengið aðgang að þeim fræðslupakka með því að senda póst á [email protected].
SJÚKÁST er árlegt átak á vegum Stígamóta. Í átakinu er unnið með unglingum í efri bekkjum grunnskóla og á framhaldsskólaaldri. Átakið fer að miklu leyti fram á samfélagsmiðlum, en einnig er kynningarefni dreift í skóla og athygli fjölmiðla vakin á málefninu.