Andlegt ofbeldi felur í sér hótanir, niðurlægingu, óvelkomið og yfirþyrmandi eftirlit svo sem með endalausum skilaboðum, auðmýkingu, ógnun, einangrun og/eða ofsóknum.
Andlegt ofbeldi getur birst á t.d. eftirfarandi máta:
Samband getur verið óheilbrigt og ofbeldisfullt án þess að það leiði nokkurn tíma til líkamlegs ofbeldis. Andlegt ofbeldi veldur tilfinningalegum skaða og sárum. Stundum verður ofbeldið svo slæmt að þú ferð að trúa því sem maki þinn segir og byrjar að efast um eigin upplifanir. Þá getur verið að maki þinn sé að gaslýsa þig.
Gaslýsing (gaslighting) er dæmi um andlegt ofbeldi sem getur verið mjög dulið, en er samt sem áður mjög alvarleg birtingarmynd andlegs ofbeldis. Þeir sem gaslýsa grafa undan veruleika annarrar manneskju með því að afneita staðreyndum og tilfinningum hennar, til þess að ná stjórn á manneskjunni. Ef það er verið að gaslýsa þig getur þú með tímanum farið að halda að þú sért einskis virði, ljót og heimsk manneskja. Þú gætir líka upplifað þig áttavillt/a/n og ringlað/a/n, átt erfitt með að taka ákvarðanir og treysta á eigið innsæi og upplifað að þú hafir „týnt þér sjálfri/um/u“. Þú sannfærist jafnvel um að enginn annar myndi vilja vera í sambandi með þér því stöðug gagnrýni og niðurlæging brýtur niður sjálfsmyndina. Þú gætir jafnvel farið að kenna þér um ofbeldishegðun makans. Það getur verið erfitt að spotta þegar er verið að gaslýsa þig. Algengar setningar sem þolendur gaslýsingar heyra eru:
Andlegt ofbeldi er aldrei þér að kenna. Treystu innsæi þínu, ef þú upplifir að einhver sé að beita þig andlegu ofbeldi, eru allar líkur á því að það sé raunin. Ræddu aðstæður þínar við einhvern sem þú treystir – foreldri, vin eða kennara – eða talaðu við óháðan aðila, t.d. námsráðgjafa, skólasálfræðing, heilsugæsluna, ráðgjafa hjá samtökum sem berjast gegn ofbeldi eða félagsþjónustu. Þú getur líka fengið ráðleggingar hjá okkur á SjúktSpjall.