Fjárhagslegt ofbeldi getur til dæmis falist í því að makinn ákveður hvað þú mátt og mátt ekki kaupa, eða skyldar þig til að hleypa honum inn á bankareikninginn þinn. Enginn hefur rétt á að nota þína peninga eða stjórna því hvernig þú ráðstafar þeim, jafnvel þótt þið eigið í ástarsambandi.
Ef þú kannast við það að maki þinn beiti einhverjum af þeim aðferðum sem taldar voru upp gætir þú verið í óheilbrigðu eða ofbeldisfullu sambandi. Fjárhagslegt ofbeldi fléttast oft saman við líkamlegt og/eða andlegt ofbeldi. Ef þú hefur ekki stjórn á þínum eigin fjármunum, eða makinn hefur fjarlægt peninga af bankareikningi þínum, gæti þér fundist erfitt að yfirgefa sambandið.
Það er hjálplegt að ræða málið við einhvern sem þú treystir, líkt og vin eða fjölskyldumeðlim. Þá gæti verið gagnlegt að tala við óháðan aðila, t.d. námsráðgjafa, skólasálfræðing, lögfræðing, samtök sem berjast gegn ofbeldi eða félagsþjónustu. Þú getur líka alltaf spjallað nafnlaust við ráðgjafa á Sjúktspjall.