Þú átt ekki rétt á kynlífi þótt þú sért í sambandi. Kynlíf á að byggja á samþykki, annars er það ekki kynlíf heldur kynferðislegt ofbeldi. Kynlíf á að einkennast af virðingu og trausti. Í heilbrigðu sambandi á kærastinn þinn að geta sagt að hann langi ekki að stunda kynlíf þá stundina eða langi ekki að gera eitthvað tiltekið í rúminu, og þú virðir þá ákvörðun jafnvel þótt þig langi til þess. Annars ertu ekki að virða hans mörk, sem er lykilatriði í heilbrigðu sambandi og kynlífi. Að suða eða pressa á kærastann að stunda kynlíf þar til hann gefur eftir kallast þvingað samþykki og er ein birtingamynd kynferðisofbeldis.
Klám getur haft ýmis neikvæð áhrif á kynlíf og samskipti. Þótt þig langi að prófa eitthvað úr klámi, er alls ekki víst að kærastinn sé sammála og hann á alltaf rétt á að neita því sem hann langar ekki að gera.