Takk fyrir taka prófið! Vonandi gaf það þér betri innsýn í sambandið þitt og fékk þig til að velta vel fyrir þér hegðun þinni í garð maka þíns.

Ef þú valdir alltaf græna kassann “Tengi ekki” ertu líklega að standa þig vel í sambandinu. Vel gert!

Ef þú valdir einhvern tímann appelsínugula eða rauða kassann á prófinu, þótt það hafi bara verið í einu svari, hvetjum við þig til að hafa samband við okkur á SJÚKTSPJALL. Þar getum við skoðað þetta saman og athugað hvort samskiptin séu heilbrigð, óheilbrigð eða mögulega ofbeldisfull. Þú getur fengið hjálp fagaðila við að vinna í hegðun þinni ef hún er skaðleg, og alls engin skömm í því. Bæði þú og maki þinn eigið skilið að vera í heilbrigðu sambandi.

Hér á síðunni og á Instagram-síðunni sjuk.ast er einnig að finna margskonar fræðsluefni um hvað einkennir heilbrigð, óheilbrigð og ofbeldisfull sambönd, og um kynlíf, klám, jafnrétti og margt fleira.

 

Fylgdu okkur á Instagram!

 

View this post on Instagram

 

A post shared by SJÚKÁST (@sjuk.ast)

Óheilbrigð og ofbeldisfull sambönd

Ef þú tengdir við eitthvað af óheilbrigðu eða ofbeldisfullu staðhæfingunum í prófinu gæti verið gott að fá hjálp.