Sjúktspjall

Sjúktspjall er nafnlaust netspjall fyrir ungmenni til að ræða áhyggjur af samböndunum sínum, samskiptum eða ofbeldi. Spjallið er fyrir ungmenni yngri en 20 ára af öllum kynjum. Spjallið opnarðu með því að smella á græna hringinn niðri í hægra horninu.

Hvernig virkar Sjúktspjall?

Á spjallinu talar þú við Sjúkást ráðgjafa sem eru þjálfaðir af Stígamótum og geta veitt aðstoð, stuðning og upplýsingar um ýmislegt sem tengist samskiptum og ofbeldi. Þú kemur inn á spjallið á eigin forsendum og þarft ekki að gefa upp nafn eða aðrar persónuupplýsingar.

Það skiptir ekki máli hvort ofbeldið eða óheilbrigðu samskiptin áttu sér stað nýlega eða fyrir löngu síðan – við erum hér til að spjalla við þig. Markmiðið er að hjálpa þér að skilja hvað gerðist, að þér líði betur og fáir stuðning við að taka næstu skref.

Spjallið er opið:
Mánudaga kl. 20:00 – 22:00
Þriðjudaga kl. 20:00 – 22:00
Miðvikudaga kl. 20:00 – 22:00

Þú getur haft samband við okkur:

Ef þú hefur orðið fyrir ofbeldi

Ef þú hefur áhyggjur af samskiptunum í sambandinu þínu

Ef þú ert að velta fyrir þér hvort þú hafir beitt ofbeldi

Ef þú hefur áhyggjur af því að vinur/vinkona/vin sé í óheilbrigðu sambandi

Ef þú ert ekki viss hvort þú hafir orðið fyrir ofbeldi

Ef þú hefur spurningar um heilbrigð samskipti

Listinn hér að ofan er að sjálfsögðu ekki tæmandi!

Spjallið er alveg nafnlaust og þú mátt spyrja um hvað sem er. Engin spurning eða pæling er heimskuleg. Við erum alltaf til í að hlusta, styðja og hjálpa.

Smelltu á græna hringinn í hægra horninu til að opna spjallið.